Er brauðið þitt að drepa þig?

Náði ég athygli þína? Ef svo þá langar mér að benda á vandamál sem margir gætu haft en vita ekki af.  Þessi fyrirsögn er á myndbandi og er líklega ekki grín. Gæti glúten óþol virkilega verið þetta stórt vandamál í okkar samfélagi? Já samkvæmt t.d Mark Hyman og Mercola. Í þessu fræðandi myndbandi segir Dr. Hyman að 99% þeirra sem eru með óþol vita ekki af því! pumpkin_bread-863

Ástæðan fyrir því að ég tala um þetta núna er að ég prófaði þetta á sjálfum mér í eina viku. Persónulega finnst mér ég hafa haft meltingartruflanir oft í mínu lífi... og það er staðreynd að glúten er mjög erfitt að melta. Svo hvers vegna ekki að prófa? Ég forðaðist mat með glúten (t.d. brauð og pasta). Mér fannst ég líða bara furðu vel með þettam meiri orka og minni óþægindi. Hrísgrjón og baunir er alveg ágætis matur með salti, olíu og súrsætri sósu.

Í gær borðaði ég hins vegar pasta og ég fann greinilegan mun. Óþægindi í maga og því tengdu nokkrum klst á eftir og restin af deginum. Fyrir mér var þessi reynsla mjög skýr og orsökin greinileg.

Ég er ekki á móti brauði og korni. Sögulega hefur fólk lifað góðu lífi þegar korn var notað á náttúrulegan hátt. En nútímavinnsla hefur breytt þessu:

  • eftir að heilt korn er mulið þá skemmist það fljótt, sérstaklega fjölómettuðu fiturnar. 

  • sögulega var hveiti og grjón oft látið liggja í bleyti í sýru. Þessu skrefi er sleppt í nútímamatvinnslu.

  • mjöl sem inniheldur glúten er í mikið af unnum mat og næringarsnauðu. Brauð, pasta, morgunkorn...

  • Jafnvel genabreytt korn sem ástæða er til að forðast.

 Ég hvet fólk til að prófa þetta.. í t.d. viku.  Og sjá svo til. Það er meira til af glútenlausum mat en maður heldur. Sjá lista hér.  Nærtækt dæmi eru hrísgrjón, sem er ódýr matur að auki.

Meira af upplýsingum: http://www.naturalnews.com/031660_gluten-free_diet_health.html

Mæli með þessu myndbandi þar sem útskýrt hvers vegna meltingarlega glúten er vandamál. Og annað hér.

Athyglisvert er að skoða hvað E. G. White skrifaði fyrir um 100 árum síðan um meltingu.

Another cause, both of ill health and of inefficiency in labor, is indigestion. It is impossible for the brain to do its best work when the digestive powers are abused. Many eat hurriedly of various kinds of food, which set up a war in the stomach, and thus confuse the brain.—Gospel Workers, 174, 1892(old edition)

We must care for the digestive organs, and not force upon them a great variety of food. He who gorges himself with many kinds of food at a meal is doing himself injury. It is more important that we eat that which will agree with us than that we taste of every dish that may be placed before us. There is no door in our stomach by which we can look in and see what is going on; so we must use our mind, and reason from cause to effect.

The disease and suffering that everywhere prevail are largely due to popular errors in regard to diet.

In the use of foods, we should exercise good, sound common sense. When we find that a certain food does not agree with us, we need not write letters of inquiry to learn the cause of the disturbance. Change the diet; use less of some foods; try other preparations. Soon we shall know the effect that certain combinations have on us. As intelligent human beings, let us individually study the principles, and use our experience and judgment in deciding what foods are best for us.


mbl.is Trefjar og heilkorn gegn krabba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður pistill.

Hef upplifað það sjálf hve gott er að tempra brauðát sem er afar ríkt hjá okkur Íslendingum, maður finnur muninn.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.11.2011 kl. 01:32

2 Smámynd: Húsmóðir

Sammála síðasta ræðumanni.

Allt of margir borða allt of oft allt of mikið af allt of unnu korni. ( vá þvílík setning )

Upplifði mikla breytingu á heimilisfólki þegar innkaup á brauði og pasta voru skorin vel niður.

magaverkir, meltingartruflanir, og hægðatregða nánast hvarf.

Húsmóðir, 26.11.2011 kl. 23:03

3 Smámynd: Karl Jóhann Guðnason

Held að brauð eins og það er framleit í dag er sjaldnast hollt. Trúi alveg að þetta hafi hjálpað ykkur.  Líklega miklu skárra með gróft brauð en samt geta vandamál tengt því.

Ég pantaði bækur um glúten og uppskriftir á netinu... eitthvað sem ég ætla að lesa mér til betur.

Karl Jóhann Guðnason, 27.11.2011 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband